Stelpur, ég er með lausnina á þessu skemmtilega vandamáli!
Við höfum þetta svona:
1. Á ártölum með sléttum tölum þá gildir Star-wars röð og skal saumó alltaf haldinn á fullu tungli nema ef maður sé varúlfur enda er maður þá upptekinn í öðru.
2. Ef að ártalið er oddatala þá gildir öfug Star-Wars röð og þá skal saumó haldinn á rísandi tungli fyrir páska en á þriðja kvartili eftir páska.
3. Á hlaupaárum er gerð sú undantekning að röðin fer eftir föðurnöfnum í þágufalli fleirtölu án greinis og skal haldinn þremur dögum eftir síðustu tíðir, nema ef maður sé óléttur.
4. Ef einhver vill breyta röðinni verður að samþykkja það á meirihlutafundi bankaráða gömlu bruðlsbankana en bara ef að kallinn í pontunni er í gráteinóttum jakkafötum og með doppótt hálstau.
Samþykkt????
Eða á ég bara að halda saumó í febrúar og við ræðum málið?????
Knús
Bryndís